Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Verum góð við börnin okkar

Börn sem hafa átt við hegðunarvandamál að stríða í æsku eru tvisvar sinnum líklegri en aðrir til að þjást af krónískum verkjum á fullorðinsárum.

Vísindamenn við Aberdeen Háskólann fylgdust með 19.000 börnum yfir ákveðið tímabil og fundu út að ákveðin hormónastarfssemi í heilanum raskast hjá börnum sem verða fyrir slæmri lífsreynslu í æsku.

Rannsóknin spannaði 45 ár og voru börnin í byrjun rannsóknarinnar fædd árið 1958 og búsett aðalega í Bretlandi. Þar til börnin höfðu náð 16. ára aldri voru foreldrar þeirra og kennarar í stöðugum viðtölum við rannsakendur og tilkynntu þeim um heðgun barnanna. Rannsakendur leituðu þá uppi vandamál hjá börnunum eins og erfiðleika  með að eignast vini, óhlýðni, stuldur, naga neglur og sjúga þumalinn, lygar og yfirgangssemi þeirra í garð annara barna. Þegar börnin höfðu síðan náð 42. ára aldri voru lagðir fyrir þau spurningarlistar sem náðu meðal annars yfir sálfræðilegt ástand þeirra. 3 árum síðar var aftur lagður fyrir þau spurningarlisti sem snéri að líkamlegum verkjum og sársauka.

Dr. Dong Pang, Yfirmaður rannsóknarinnar við Aberdeen Háskólann segir að ljóst sé að slæm atvik í æsku eins og bílslys eða það að verða aðskilin frá móður valdi krónískum verkjum og sársuka á fullorðinsárum. Hins vegar hefur ekki verið vitað þar til nú að slæm hegðun í æsku illu börnum samskonar verkjum og sársauka.

Þá segja rannsakendur ennfremur að slæm hegðun í uppvexti valdi ekki krónískum verkjum og sársauka ein og sér heldur séu fleiri sálfræðilegir þættir sem koma þar að eins og þunglyndi, kvíði og vanlíðan, oft sökum illrar meðferðar úr æsku. Allir þessir þættir valda ójafnvægi á starfsemi í heilanum sem stjórnar hormónaframleiðslu sem snýr að því að koma jafnvægi aftur á í líkamanum eftir andleg og líkamleg áföll.

Dr. John McBeth, verkja- og sársaukasérfræðingur við háskólann í Manchester, segir að eftir því sem meira kemur í ljós að umræddir áhrifaþættir valdi sársauka og verkjum á fullorðinsárum því mikilvægara sé að gera sér grein fyrir því hvað sé að gerast og gangi á, snemma í æsku barna.

Heimild: http://news.bbc.co.uk/2/hi/health/8555892.stm



Mynd augnabliksins

pict4033.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning