Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Hvað segir fólkið í landinu?

Fréttaritari Landpóstsins gluggaði í skrif vina sinna á facebook til að taka púlsin á viðbrögðum fólks við útkomu rannsóknarskýrslunnar og atburða undanfarinna daga. Eftirfarandi eru beinar tilvitnanir teknar úr "status" fólks og sýna þær glöggt að fólk er allt annað en ánægt.

"Löglegt en siðlaust? Ef fólk veit að gjörðir þeirra eru siðlausar, hversvegna gerir það hlutina þá? Og ef svo, getur þá sama fólk átt von á því að það haldi virðingu annara? "

 

"Do you know why there's a constant vulcanic eruption in Iceland? They're making space in Hell for those responsible for the bank collapse! They were even wise enough to stop for a few days, for the Althingi report to come out to see how much space they needed!!"

"15 mínútur í skýrsluna. Mig grunar að fréttirnar sem við fáum verði svipaðar því að segja manni sem barinn hefur verið til óbóta að á meðan hann lá meðvitundarlaus hafi líka verið migið á hann."

"Þessi vika hefur veirð viðburðarrík, eldgos, skýrsla og gröfukall hangandi utan í þyrlu. Toppaðu þetta, næsta vika!"

"kreppa, æsseif,skýrsla, gos - hvað sem því öllu líður er enn þvottur að þvo, börn að baða, sögur að segja - hversdagurinn rúlar!"

"Fíflarnir fara ekkert ef rótin er ekki stungin upp...og það sama á við um fíflin... BURT MEÐ FLOKKAKERFIÐ!!"

"Vona að margur maðurinn sé á leið inn í raunveruleikann og láti loks af persónudýrkun vanhæfasta seðlabankastjóra sem sögur fara af í því sem átti að vera siðmenntað ríki."

"Er ekki komið nóg af því að bankar skili tugi milljarða hagnað á hverju ári? Er ekki kominn tími til að við sem neytendur förum að mótmæla þessu... Ef eins og Glitnir er að skila árið 2009, 24 milljörðum í hagnað og reiknaður tekjuskattur hjá þeim 4,7 milljarðar... og ruglið er búið????"

"fósturjörðinni er greinilega óglatt þessa dagana......

Úti er alltaf að gjósa,

nú komið er að flóðinu,

í öllu syndaflóðinu.

En sussum og sussum og róa,

ekki gráta elskan mín,

þó þig vanti vítamín,

Skuldirnar eigum við nógar,

handa litlu krökkunum,

sem kúra sig í bökkunum.

Þú færð í maga þinn mjóa,

afsökun frá Bjögga Thor"

"Dr. Gunni er stundum fyndinn: "Fyrstu viðbrögð við Skýrslunni: Þetta lið kann ekki að skammast sín. Önnur viðbrögð: Í hvaða tugthúsum á að koma öllu þessu liði fyrir? Þriðju: Hún er hott þessi dökkhærða"."

"Nýtt gos hafið í miðri skýrsluumfjöllun, vona að fjölmiðlarnir gleymi ekki skýrslunni vegna þess."

"Þetta eldgos er í boði Glitnis."

"****  sér að það var jú helber lygi að Jón Ásgeir skuldaði þúsund milljarða. Skv. skýrslunni voru þeir bara níuhundruð sjötíu og fimm."

"Bónus er svo ódýrt...NEI! VIÐ ÖLL ERUM AÐ BORGA BAKREIKNINGINN!!!!"

"Legg til að titlar eins og fjárfestir eða athafnamaður verði afmáðir úr íslenskri tungu."

"hyskið skal dregið til ábyrgðar hjá dómstólum götunnar..."

"popp og dvd með guttanum - allavega verður EKKI kveikt á útvarpi eða sjónvarpi . Er komin með upp í kok af þessu öllu saman....."

"Ég vil fá Vilhjálm Bjarnason og Ólaf Ísleifsson í þjóðstjórn STRAX! Ísland í dag er verra en það var 2007. Siðferðið hefur ekkert breyst og mun ekki gera með þessu þingmönnum."

"Afhverju skildu þeir allir hafa flutt lögheimili sitt úr landi! Þeir vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera! Setur fólk á hausinn og kemur svo með yfirlýsingu í fréttablaðinu og segir fyrgefðu mér þetta voru mistök en ég mun standa á mínu og borga mínar skuldir! Ætlar þá Björgúlfur að borga skuldir heimilina og þá sem hafa farið á hausin! Þvílíkur aumingji og laga atvinnuleysið brotnu heimilin þetta er viðbjóður"

1)     Eigum við ekki að nota þetta menntaða fólk á viðskiptasviðinu í að undirbúa aðra útrás? Við gætum orðið stórveldi aftur á viðskiptasviðinu. Jón Ásgeir gæti verið forsætisráðherra í þjóðstjórn, Björgólfur Thor utanríkisráðherra, Bjarni Ármannsson landbúnaðarráðherra, Þorsteinn Már sjávarútvegsráðherra, Þorgerður Katrín iðnaðarráðherra, Sveinn Andri Sveinsson dómsmálaráðherra, Ólafur Elíasson tæki menningarmálinn?

2)     Og koma aftur á fót dóms- og kirkjumálaráðuneytinu sem gæti verið skipað af Gunnari í Krossinum?

3)     ég myndi hafa Lárus welding sem forstjóra fjármálaeftirlitsins og Pálmi Haraldsson sem sérstakann saksóknara!!!

4)     Davíð Oddsson sem forseta, hann gæti verið þá í opinberri heimsókn nú þegar

5)     Sigurjón Árnason yrði að fá að vera fjármálaráðherra. Hann myndi örugglega koma með eitthvað sem skákaði Icesave og við yrðum rík og gætum grillað á kvöldinn.

6)     Við gætum grillað öll hreindýrin okkar..þau eru líka pínu ringluð eftir að Kárahnjúkavirkun var byggð. Líklega best að grilla þau bara.

7)     Björgólfur gamli gæti verið forseti alþingis, það verður að hafa forsetann flott dressaðan í teinótt, annars er fangadragtin líka teinóttJ 

"Íslenska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að hún hyggst breyta tákni landsins úr fána yfir í smokk þar sem að hann lýsir betur póitískri stöðu þjóðfélagsins. Smokkurinn leyfir þenslu, hindrar framþróun, eyðileggur næstu kynslóð, verndar fjölda asnaprika og gefur þér öryggistilfinningu þrátt fyrir að verið sé að taka þig í Rassgatið. !!!"



Mynd augnabliksins

img_0446.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 42
Samtals: 173886

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning