Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Akureyringar keppa í Útsvari

Hilda Jana Gísladóttir, Erlingur Sigurðarson og Pálmi Óskarsson. Mynd/akureyri.is
Hilda Jana Gísladóttir, Erlingur Sigurðarson og Pálmi Óskarsson. Mynd/akureyri.is
Í kvöld mætir Akureyri Reykjanesbæ í þriðju umferð spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari. Brottfluttir Akureyringar, og norðanmenn sem staddir eru á höfuðborgarsvæðinu, eru hvattir til að mæta í sjónvarpssal og hvetja sitt lið áfram. Bein útsending frá spurningakeppninni hefst strax að loknu Kastljósi kl. 20.10. Lið Akureyrar skipa sem fyrr þau, Hilda Jana Gísladóttir, Erlingur Sigurðarson og Pálmi Óskarsson. Lið Reykjanesbæjar er skipað Baldri Guðmundssyni, Huldu G.Geirsdóttur og Theodóri Kjartanssyni. Áhugasamir áhorfendur sem ætla að mæta og fylgjast með útsendingunni þurfa að vera mættir í Útvarpshúsið, Efstaleiti 1, kl. 19.45.


Mynd augnabliksins

img_4653.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning