Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Að vera þakklátur og jákvæður

Neikvæðni hefur verið svolítið áberandi í þjóðfélaginu að undanförnu (alla vega í kringum mig) og kannski er það engin furða því að svo margt neikvætt hefur gerst. Bankarnir hrundu og nú neyðist þjóðin til að borga erlendar skuldir þeirra, sem kemur ekki sérlega vel út fyrir hinn almenna borgara landsins. En hvernig væri nú að við ýttum neikvæðninni til hliðar og færum að horfa á björtu hliðarnar á lífinu?

Hættum að láta það sem aðrir gera fara í taugarnar á okkur og sýnum öðrum þá tillitsemi sem við ætlumst til að þeir sýni okkur.  Í stað þess að kvarta og kveina yfir því sem við getum ekki leyft okkur að gera sökum kreppunnar, ættum við að þakka fyrir það sem við eigum nú þegar og reyna að sjá björtu hliðarnar á því sem gerist... sama hvað það er.  Ég ætla til dæmis að sjá björtu hliðarnar á og vera þakklát fyrir hækkandi bensínverð því það hvetur mig til að spara bílinn og ganga meira, allavega styttri vegalengdir.  Vonandi leiðir það til betri heilsu ... sem er jákvætt, og jafnvel minni mengunar.  Ég ætla líka að vera þakklát fyrir hækkandi vöruverð því þannig hugsa ég frekar um það hvað ég er að kaupa og eyði (vonandi) minna í hluti sem ég hef ekkert með að gera og nota ekki... sem er jákvætt.

En það er margt fleira til sem maður ætti að vera þakklátur fyrir. Ég á fjölskyldu sem ég lít stundum á sem sjálfsagðan hlut og þó stendur hún við bakið á mér þegar ég þarf á því að halda. Fyrir það er ég þakklátari en margt annað, þó svo að ég láti það ekki alltaf í ljós. Ég er  heilsuhraust sem gerir mér kleift að ganga í skóla, sinna vinnu og heimili, leika við börnin mín og taka þátt í þeirra lífi og starfi.  Það er með því dýrmætasta sem til er í heiminum.  Ég á líka vini sem taka mér eins og ég er sem er ekki alltaf auðvelt því ég er engin engill og get verið þrjóskari en and..... .  Fjölskyldan neyddist til að taka við mér með öllum mínum kostum og göllum en þetta fólk hefur valið að umgangast mig þrátt fyrir gallana og fyrir það er ég einstaklega þakklát.

Ef við hugsum okkur vel um má alltaf finna einhverjar jákvæðar hliðar á öllum málum og gleymum ekki að vera þakklát fyrir og meta það sem við eigum og getum því það skiptir meira máli en það sem við getum ekki og höfum ekki eignast.

 

RAH



Mynd augnabliksins

img_8691.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning