Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Karlakór rokkar

Karlakór Dalvíkur á góðri stundu með stórsöngvaranum Friðriki Ómari
Karlakór Dalvíkur á góðri stundu með stórsöngvaranum Friðriki Ómari

Karlakórinn á Dalvík hefur að undanförnu verið að vinna með rokkhljómsveit Matta Matt, sem meðal annars er þekktur fyrir að vera söngvari í hljómsveitinni Pöpum. Um er að ræða rokkprógram þar sem að lög með Bítlunum og Queen eru flutt í skemmtilegri útsetningu Guðmundar Óla Gunnarssonar stjórnanda kórsins.

Þeir félagar hafa verið duglegir að æfa, byrjuðu síðastliðinn vetur og hafa svo verið við stífar æfingar í allt haust.  Afraksturinn verður fluttur á tveimur tónleikum. Föstudagskvöldið 6. nóvember í Bergi, nýja menningarhúsi Dalvíkinga og svo Samkomuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 8. Nóvember.

Að sögn Guðmundar er með þessu verið að fara nýjar leiðir þar sem fært er karlakórinn inní rokkið og vonandi með því verið að höfða til breiðari hóps áheyranda. Ríflega 30 félagar taka þátt í karlakórnum ásamt Matta Matt og rokkhljómsveit sem skipuð er ýmsum snillingum.

Þetta er spennandi dæmi því það er ekki á hverjum degi sem gefst kostur á því að fá að sjá Karlakór rokka.

Hægt er að nálgast miða í Húsasmiðjunni á Dalvík og Eymundsson á Akureyri. Miðaverð er 2.500 krónur.

 

 



Mynd augnabliksins

img_8667.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning