Menning - fimmtudagur 11.mars 2010 19:00 - Sigrún Finnsdóttir - Lestrar 40 -
Athugasemdir (0)

Presley á sínum gullaldarárum
Friðrik Ómar minnist Elvis Presley með tónleikum í Sjallanum 12. mars þar sem hann flytur helstu perlur rokkkóngisns.
Ásamt fleiri frábærum tónlistarmönnum sem eru, Þórir Baldursson píanó, Róbert Þórhallsson bassi, Jóhann
Hjörleifsson trommur, Hallgrímur Ingvason gítar, Ómar Guðjónsson gítar, Heiða Ólafsdóttir, Margrét Eir og Kristján
Gíslason sjá um bakraddir.
Elvis Presley fæddist í Tupelo í Mississippiríki í Bandaríkjunum 8. janúar árið 1935 og hefði því orðið 75
ára í ár. Elvis sló fyrst í gegn 1956, tuttugu og eins árs, og varð skjótt skærasta rokk og roll stjarnan, en rokkið var þá
ný tónlistargrein innan dægurlagatónlistarinnar. Elvis var oft nefndur konungur rokksins eða bara kóngurinn.