Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Éljagangur 2012

Hlíðarfjall
Hlíðarfjall
Vetrar- og útivistarhátíðin Éljagangur er haldin í Hlíðarfjalli á Akureyri dagana 9.- 12. febrúar 2012. Fjölbreytt skemmtun og afþreying af ýmsum toga sem tilheyrir skíðaíþróttinni og vetrarferðum er í boði og er af mörgu að taka.

T.d. verður Vasaljósaganga í Hlíðarfjalli þar sem gengið er um myrkvaða braut og verðlaun veitt fyrir frumlegasta ljósabúnaðinn. Brettasýning verður einnig þar sem snillingar á snjóbrettum sýna listir sínar. Boðið verður upp á ferð með snjótroðara á Kaldbak, en þaðan er magnað útsýni yfir Eyjafjörðinn og fjöllin norður af. Hægt verður að renna sér á skíðum eða snjóþotum niður fjallið en það er 1173m yfir sjávarmáli.
Reynt verður að komast í nálægð við norðurljósin og upplifa sjónarspil ljósa og lita þeirra sem hvergi eru fegurri en í norðri við ysta haf.
Fleiri upplýsingar um hátíðina er á heimasíðu Éljagangs; eljagangur.is

 

 



Mynd augnabliksins

20110217-_mg_8229-26.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning