Ein eftirminnileg

Mér fannst reyndar athygli vert að lesa það einhversstaðar að þetta væri "strákamynd". Það er gott að vera tengd sinni karllægu hlið jafnt og sinni kvenlægu, því að mér finnst þær myndir sem oft eru flokkaðar sem "stelpumyndir" líka oft bæði skemmtilegar og vitrænar.
Aðalleikarar í The Departed eru Leonardo DiCaprio, Jack Nicholson, Matt Damon og með þeim eru svo nokkrir úrvalsleikarar sem hjálpa til að gera úr
þessu mjög góða ræmu. Ég sé engan tilgang í því að rekja söguþráð myndarinnar hér en hún fjallar
um glæpona og löggur sem allir eru að reyna að ná í skottið á hvor öðrum. Reyndar er þetta endurgerð á Hong Kong myndinni
Internal Affairs frá 2002 (leikstjórar Andrew Lau og Alan Mak) , en hana hef ég ekki séð og hef því ekki samanburðinn.
Atburðarásin minnir á klassískan harmleik eða sögu úr grískri goðafræði og getur að mínu mati kallast dæmisaga -
það er allavega alveg hægt að taka þann pól. Þetta getur allavega verið klassísk saga sem hefur verið sögð milljón sinnum og
fær mann til að hugsa um uppruna, tryggð, traust/vantraust og tilgang lífsins etc. Að fjalla um þessa hluti í svona löggumynd þar sem allir eru rosa
ófullkomnir og mannlegir er mjög flott. Tvær af aðalpersónum myndarinnar lifa tvöföldu lífi og gengur það mjög nærri þeim og
ruglar þá í ríminu. Út frá því getur maður spurt sig hvort að til sé nokkurt líf sem sé einfalt (þ.e. ekki
tvöfalt) og hvort til sé einhver "rétt" sjálfsmynd. Tragedían í myndinni höfðaði vel til mín, mér finnst harmleikir meira
sannfærandi en „happy end“ myndir. Ef þið kannist við orðatiltækið "win, win situation" þá er um að ræða
andstæðu þess í The Departed. Er hægt að tala um "loose, loose situation" ??
Að lokum er þetta jú búið hjá okkur öllum.


