Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Dómur varðandi kynferðislega áreitni á vinnustað

Hæstiréttur kvað upp dóm sinn þann 16. febrúar sl. í máli konu vegna kynferðislegrar áreitni á vinnustað.
Málsatvik voru þau að yfirmaður og tveir starfsmenn fóru í vinnuferð í sumarbústað vegna fyrirhugaðra breytinga á starfssviði konunnar sem áttu að fela í sér umfangsmeiri verkefni og aukna ábyrgð. Að lokinni vinnu óskaði yfirmaður konunnar ítrekað eftir að hún færi í heitan pott en þegar konan sagðist ekki hafa sundföt sagði yfirmaður hennar að hún þyrfti ekki nein sundföt eða hann gæti lánað henni föt af sér.

 

Konan neitaði enn og úr varð að mennirnir tveir fóru í heita pottinn. Vegna mikils þrýstings frá yfirmanninum um að konan settist hjá þeim við heita pottinn lét hún loks undan. Varð hún þá vör við að yfirmaður hennar væri nakinn í heita pottinum. Konunni var mjög brugðið og stóð strax upp, bauð góða nótt og fór til síns herbergis. Þar sem ekki var hægt að læsa herbergishurðinni setti hún ferðatösku fyrir dyrnar svo hún myndi heyra ef einhver reyndi að komast inn. Þá fór hún fullklædd í rúmið þar sem hún var mjög óörugg með aðstæðurnar. Um nóttina bankaði yfirmaður hennar ítrekað á hurðina en konan ákvað að svara ekki. Þegar konan svaraði ekki ruddist yfirmaður hennar inn í herbergið. Spratt þá konan á fætur þar sem hún gat ekki hugsað sér að hafa yfirmanninn í herbergi sínu. Þau settust fram í sófa og reyndi konan að halda eins mikilli fjarlægð við yfirmanninn og hægt var sem ítrekað reyndi að nálgast hana og bað hana að taka í höndina á sér. Konunni leið mjög illa og fannst hún bæði lítillækkuð og misboðið af yfirmanninum.

Taldi hún sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu yfirmanns og lagði fram kvörtun þess efnis við atvinnurekanda sinn. Atvinnurekandinn taldi að athæfi yfirmannsins í ferðinni hafi ekki verið kynferðisleg áreitni. Stakk atvinnurekandi upp á því að að starfsmannastjóri yrði næsti yfirmaður hennar svo hún þyrfti ekki að hafa samskipti við yfirmanninn og áttu verkefni hennar að haldast óbreytt. Fljótlega fór þá að draga úr verkefnum hennar og dregið úr aðgangsheimildum. Konan taldi brotið á sér og eftir árangurslausar tilraunir til lausna við atvinnurekanda sinn lagði hún málið fyrir dóm.

Héraðsdómur taldi að um kynferðislega áreitni í skilningi jafnréttislaga hefði verið að ræða og atvinnurekandinn hefði með aðgerðum eða aðgerðarleysi brotið á henni og brotið gegn skyldum sínum sem atvinnurekandi með þeim afleiðingum að henni var gert ókleift að halda starfi sínu áfram óbreyttu.

Hæstiréttur taldi að ekki hefði verið um kynferðislega áreitni að ræða og að ekki hefði verið leitt í ljós að hún hefði verið beitt óréttlæti í starfi með tilliti til starfsöryggis og starfskjara.

Dóminn má lesa hér



Mynd augnabliksins

20110224-_mg_8449-21.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning