Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Curacao í fyrsta sæti árið 2010

Willemstad
Willemstad

Ferðatímaritið Shermans Travel Magazine gaf út lista um helstu ferðamannastaðina fyrir árið 2010. Í fyrsta sæti var eyjan Curacao í Karabískahafinu en á listanum voru einnig Grenada og Jamaica.

Curacao er lítil eyja staðsett í Karabískahafinu, rétt utan við strendur Venezuela. Eyjan er ásamt Aruba og Bonaire í eyjaklasa sem nefnist ABC eyjarnar.  Curacao er stærst þessara eyja og er um 444 km² að stærð. Henni er oft líkt við Miami, þar sem eyjan er með stóra höfuðborg, en stutt er í strandarfjörið. Höfuðborg eyjunnar er Willemstad og skiptist hún í tvo hluta, Punda og Otrobanda, og tengjast þeir saman með göngubrú á bátum yfir höfnina.

Punda var stofnuð 1643 af Hollendingum en Otrobanda var síðan stofnuð 1707 og er því nýjasti hluti borgarinnar og er oft kallaður menningarhluti borgarinnar. Gaman er að ganga um bæinn þar sem húsin eru í skemmtilegum og skærum litum og öllum stærðum og gerðum.

Stærsta hótel eyjunnar er Hotel Kurahulanda sem er staðsett fyrir miðja Punda og er í rauninni lítið þorp. Hótelið er einnig safn um þrælahald í Afríku og sögu Curacao og er því einn af vinsælustu ferðamannastöðum á svæðinu.

Eyjan hefur margar strendur og er Mambo Beach ein sú vinsælasta meðal ferðamanna. Þar eru verslanir, veitingastaðir og fjörugt næturlíf.

Á eyjunni er margt í boði fyrir ferðamenn. Hægt er að fara í siglingar um eyjurnar og fara í gönguferðir og buggy ferðir um eyjuna. Þá er einnig mjög vinsælt að fara í hellaskoðanir en mikil er um hella með skemmtilegu dýralífi á eyjunni.

ABC eyjurnar eru einna frægastar fyrir kóralrifin þar í kring og eru þær hinar mestu köfunarparadísir. Hægt er að læra að kafa á eyjunni frá viðurkenndum félögum og leigja köfunarbúnað. Einnig er hægt að leigja gleraugu og öndunarpípu fyrir þá sem vilja skoða neðansjávarlífið en halda sig nær yfirborðinu.

Hægt er að ferðast til eyjunnar með flugi en þó er mjög vinsælt að ferðast þangað á skemmtiferðaskipum, sem heimsækja um leið aðrar eyjar í Karabískahafinu.



Mynd augnabliksins

img_4699.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning