Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Confessions of a Shopaholic

Isla Fischer í hlutverki sínu
Isla Fischer í hlutverki sínu

Sambíóin hófu um helgina að sýna bandarísku gamanmyndina Confessions of a shopaholic.  Undirrituð er ekki mikið fyrir „chick flick“ myndir, eða „gelgjumyndir“ eins og það myndi útleggjast á íslensku, en vegna fábreytts úrvals kvikmyndahúsanna í bænum fleygði hún sér í djúpu laugina.

Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Sophie Kinsella og segir frá Rebeccu Bloomwood, blaðamanni og kaupalka í New York borg.  Rebecca Bloomwood (Isla Fischer) á sér þann draum heitastan að vinna á uppáhalds tískublaðinu sínu, en þegar hún sækist eftir starfi á blaðinu nælir hún sér fyrir slysni í vinnu sem dálkahöfundur fjármálatímarits.  Hjólin fara að snúast og ef ekki hefði verið  fyrir kaupfíkn Rebeccu og illa innheimtumanninn hefðu draumar hennar líklega orðið að veruleika.

Confessions of a shopaholic kom skemmtilega á óvart.  Myndin er hin ágætasta skemmtun og þessum 550 krónum var vel varið í spar-bíó.  Innkauparáð kaupalkans Rebeccu eiga eflaust eftir að sitja föst í kolli þeirra sem nota kreditkortið óspart og undirrituð á eflaust eftir að hugsa sig tvisvar um næst þegar hún ætlar að kaupa kápu á kredit.  Myndin er samt sem áður líkt og margar amerískar stelpumyndir mikil þvæla og ekki fyrir hvern sem er.

Meðal leikara í myndinni eru Hugh Dancy, Krysten Ritter, Joan Cusack og John Goodman.

                                                        -Elísa Arnarsdóttir



Mynd augnabliksins

img_0432.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning