Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Buch-orkugangan verður haldin um helgina

Frá Buch-orkugöngunni í fyrra
Frá Buch-orkugöngunni í fyrra
Buch-orkugangan er árleg gönguskíðakeppni sem haldin hefur verið í sameiningu af Húsvíkingum og Mývetningum undanfarin ár og gefur hún stig til Íslandsgöngu Skíðasambandsins.

Um helgina er komið að Buch-orkugöngunni og verður hún haldin laugardaginn 14. apríl, en um er að ræða lengstu skíðagöngu sem haldin er á Íslandi ár hvert. Buch-orkugangan er með örlítið breyttu sniði í ár vegna snjóleysis. Gangan hefur verið 60 km löng en er styttri þetta árið.

Í ár er Buch-orkugangan sjálf 35 km löng en að auki eru styttri vegalengdir í boði svosem 20 km, 10 km, 5 km og 1 km ganga og ættu því allir að geta fundið sér vegalengd við hæfi. Allar vegalengdir verða gengnar á Reykjaheiði og er mæting fyrir keppnina upp á skíðasvæðið á Reykjaheiði. Ræst er af stað í allar vegalengdir á sama tíma eða klukkan 11:00 á laugarsmorgninum.

Allar nánari upplýsingar sem og rafræna skráningu er hægt að nálgast á síðu keppninnar HÉR.



Mynd augnabliksins

hjalmar_018.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning