Battle: Los Angeles

Myndin Battle: Los Angeles fjallar um baráttu eins undirfylkis í bandaríska hernum við geimverur sem ráðast á jörðina. Leikstjóri er Jonathan Liebesman og með aðalhlutverk fara Aaron Eckhart, Michelle Rodriguez og Bridget Moynahan.
Ég ákvað að skella mér á Battle: Los Angeles í gær eftir að hafa verið staðráðin í að sjá hana vikuna á undan en hætt svo við eftir að mér var ráðið frá því að sjá hana í bíó. Ég las líka gagnrýni um myndina sem birtist einn daginn í Fréttablaðinu, hún var neikvæð á alla kanta og þar var m.a. minnst á að persónurnar væru klisjukenndar. Gagnrýnandinn endaði á að gefa myndinni eina stjörnu. Ég ákvað að fara á myndina eftir að vinkona mín að sunnan mælti með henni og sagði að ég mundi ábyggilega fíla hana. Ég var sem sagt ekki með miklar væntingar til myndarinnar aðrar en þær að ég vildi fá að sjá smá hasar og sprengjur.
Myndin gerist í Los Angeles og byrjar sagan á því að landgönguliðinn Michael Nantz (Aaron Eckhart) er að hætta hjá hernum eftir 20 ára starf. Hann getur þó ekki hætt strax þar sem geimverur ráðast á stórborgir jarðarinnar, þar á meðal Los Angeles og allir hermenn eru kallaðir til starfa. Michael Nantz er settur í nýja hersveit og er fylgst með baráttu hennar gegn geimveruhernum.
Ég verð að segja að mér fannst myndin hin fínasta afþreying og sé ekki eftir krónunum sem ég eyddi í bíómiðann. Auðvitað má ekki fara á myndina með því hugarfari að myndin sé frumleg og væntanlegur keppandi um Óskarsverðlaun enda er þetta hasarmynd, hvorki meira né minna. Eftir á að hyggja get ég svo sem verið sammála því að persónurnar eru klisjukenndar en myndin hefur fínt skemmtanagildi.

