Árekstur á Öxnadalsheiði
Betur fór en á horfðist þegar tveggja bíla árekstur varð á Öxnadalsheiði um klukkan 23:00 í kvöld. Fólksbíll og pallbíll skullu saman og voru aðeins ökumennirnir í báðum bílunum og sluppu þeir báðir ómeiddir en hinsvegar eru bæði ökutækin talin ónýt.
Skyggnið var slæmt þegar áreksturinn átti sér stað og einnig voru hálkublettir á heiðinni. Fólksbílinn var að koma úr suðurátt og pallbílinn var að koma úr gagnstæðri átt þegar þeir skullu saman. Að sögn sjónarvotta snérist fólksbílinn á veginum og við áreksturinn hafnaði pallbílinn utan vegar.


