Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Almenningur treystir lögreglunni

Aldrei hafa fleiri borið traust til lögreglunnar en nú samkvæmt nýrri rannsókn frá Gallup. Gallup hefur kannað traust almennings til nokkurra stofnana og embætta frá því árið 1993. Undanfarin ár hefur lögreglan mælst með næstmesta traustið á eftir Háskóla Íslands, eða um það bil 76 %. En í ár er lögreglan efst með rúmlega 81 %.

Lögreglan hefur verið með löggæsluáætlun í gangi síðastliðin ár eða frá árinu 2007 og gildir hún til ársins 2011. Í þessari áætlun er unnið markvisst að því að veita bestu hugsanlegu þjónustu og vinna að því að efla og viðhalda trausti almennings. Það virðist vera að skila sér og hefur ríkislögreglustjóri lýst yfir ánægju sinni með þessa niðurstöðu.


Mynd augnabliksins

img_0472.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning