Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Akureyrarbær úthlutar styrk til norðlensks listamanns.

Listmenn á Akureyri geta nú sótt um starfslaun fyrir tímabilið 1. júní 2010 til 31. maí 2011 eða því sem jafngildir sex mánaðar vinnu. Á síðasta ári hlutu Guðný Kristmannsdóttir myndlistarkona og Björn Þórarinsson tónlistarmaður styrkinn. En til að geta sótt um styrkinn þarf listamaðurinn að beina allri sinni athygli að listinni og vinna vel og ákveðið að verkefnum sínum sem tengjast listinni. Það eru eingöngu listamenn með lögheimili á Akureyri sem geta sótt um styrkinn. Til þess að umsóknin sé tekinn til greina þarf listamaðurinn að skila inn umsókn, upplýsingum um listaferil sinn og síðan mjög góðum upplýsingum um hvernig starfslaunatímanum verði varið.

Umsókninni skal síðan skilað í ráðhúsið að Geislagötu 9. Ef spurningar vakna hjá einstaklingum sem ætla að sækja um er þeim bent á að hafa samband við Huldu Sif Hermannsdóttir verkefnastjóra viðburðar- og menningarmála hjá Akureyrarstofu, netfangið hjá henni er huldasif@akureyri.is.

Umsóknarfrestur fyrir listafólk er til 19. mars.


Ester Ósk Árnadóttir.


Mynd augnabliksins

img_0515.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 10
Samtals: 174392

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning