Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Áhöfn British Airways greiða atkvæði um boðun verkfalls.

Áhöfn British Airways greiða atkvæði um boðun verkfalls á morgun. Stefnt er á að verkfallið hefjist um jólin. Stéttarfélagið Unite spáir að um 12.000 starfsmenn muni kjósi hvort efnt verði til verkfalls vegna niðurskurðar í fyrirtækinu. Ef starfsmenn kjósa á þann veg mun verkfallið hefjast 21. desember og þar af leiðandi stöðva rekstur fyrirtækisins að miklu leyti.

British Airways (BA) ætla sér að fækka starfmönnum á Boeing 747 flugvélunum um einn mann á hverja flugvél og eru starfsmenn BA reiðir vegna þessarar ákvörðunar. Málinu hefur verið stefnt fyrir dómstóla og eiga réttarhöld að hefjast í byrjun næsta árs.
Yfirmaður flugdeildar Unite, Brian Boyd, segir að „Leiðin að breytingum felst í samningaviðræðum en ekki í frekjuskap”. Hvað varðar mikilvægar ákvarðanir þjónustumála finnst áhöfn BA að ekki sé hlustað á þá en þeim er ákaflega annt um störf sín. Þessi iðnaður snýst um viðskiptavinina og áhöfnin vill ekki að viðskiptavinir BA verði fyrir óþægindum vegna breytinga fyrirtækisins.

Framkvæmdastjóri BA, Willie Walsh, hefur í bréfi til Unite sýnt vilja á að hefja viðræður varðandi niðurskurðaráætlun BA þar sem markmiðið er að lækka kostnað áhafnarinnar um 140 miljón punda, eða um 28 miljarða íslenskra króna, á ári.

Einn talsmaður BA sagði fyrirtækið vera ánægt með að viðræður milli Derek Simpson og Tony Woodley, forystumenn Unite, og Willie Walsh muni hefjast á næstu dögum. Hann bætir því við að „ef tekið er með í reikninginn mettap fyrirtækisins teljum við að fyrirkomulag okkar gagnvart áhöfn BA sé sanngjarnt og réttlátt”.

Í síðustu viku var greint frá sameiningu spænska fyrirtækisins Iberia og BA. Iberia hefur, eins og BA, tapað miklu fé á þessu ári en samtals nema skuldir fyrirtækjanna um 600 miljónum punda eða um 122 miljarðum íslenskra króna.


Mynd augnabliksins

img_0432.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning