Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Áfram Japan

Mynd tekin af vef Parkinsonsamtakanna - parkinson.is
Mynd tekin af vef Parkinsonsamtakanna - parkinson.is

Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þessara tilrauna. Landpósturinn tók í gær viðtal við Parkinsonsjúkling, um mál alls óskylt þessu, sem mun birtast hér á Landpóstinum næstu daga og óskandi að finnist lækning sem fyrst.

Morgunblaðið segir frá tilraun sem japanskir vísindamenn hafa gert á öpum, sem þjást af parkinssjúkdómnum. Sýna þeir batamerki eftir að vísindamenn komu stofnfrumum manna fyrir í heila þeirra. Aparnir voru illa haldnir, útlimir hristust og áttu þeir erfitt með að stjórna líkama sínum. Sex mánuðum eftir að frumunum hafði verið komið fyrir í heila þeirra, höfðu þeir betri stjórn á líkamanum og gátu gengið um.

Yfirmaður rannsóknarinnar, Jun Takahashi, sagði að 35% frumnanna hefðu orðið að dópamín taugafrumum. Næstu tilraunir miða að því að auka fjölda þeirra frumna upp í 70%. Takahashi segist hafa notað stofnfrumur úr fóstrum, en segir líklegt að í framtíðinni verði notast við frumur sem eru ræktaðar úr húð manna. Engar takmarkanir eru á notkun stofnfrumna í vísindalegum tilgangi í Japan



Mynd augnabliksins

img_8693.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning