,,Munurinn á peningapóker og mótapóker er jafn mikill og munurinn á sunnudagsrúnti og rallakstri”

Í tilkynningunni segir m.a. ,,Ísland hefur þurft að þola ýmsar skuggahliðar mannlegra athafna síðustu misserin og ekki er á þær
bætandi. Spilavíti gera út á mannlega veikleika og hversu mikið sem fagurgalinn og hugtakaruglingurinn fær athygli fjölmiðla þá stendur
eftir sú staðreynd að enginn akkur er í slíku fólginn; einungis aukið álag á hinu félagslega stoðkerfi og nóg er nú
þegar. Ekki þarf að fjölyrða um hina siðferðislegu uppgjöf sem fælist í því að lögleiða spilavíti”.
Nokkur umræða hefur verið undanfarin ár um fjárhættuspil á Íslandi og sitt sýnist hverjum. Landpóstur hafði fregnir af nokkrum klúbbum á Akureyri sem stofnaðir hafa verið til að spila upp á peninga, aðallega póker, blaðamaður heyrði í forsvarsmanni eins þeirra til að kanna álit hans á lögleiðingu fjárhættuspila.
Atli Már Egilsson er formaður pókerklúbbsins The Syndicate, sem er sá klúbbur sem var einna fyrstur til að halda opin pókermót á
Íslandi. Klúbburinn spilar aðeins mótapóker, þ.e. greitt er þátttökugjald í upphafi móts og verðlaun greidd út eftir
árangri.
Aðspurður út í yfirlýsingu Vinstri Grænna segir hann: ,, ég verð að viðurkenna að vissulega eru sterk rök fyrir því
að spilavíti geri útá mannlega veikleika. Allir vita að spilavíti eru þannig gerð að húsið stendur alltaf uppi í gróða.
Spilavíti eru líka þannig gerð að þau bjóða fólki að spila spil þar sem heppnin spilar stórt hlutverk”. Sjálfur
segist hann aldrei hafa stigið fæti inn í spilavíti en viðurkennir að ef boðið væri upp á vel skipulagðan mótapóker í
spilavíti, þá myndi hann eflaust fara þangað.
Klúbburinn sem hann er í forsvari fyrir er að hans sögn, félagsskapur einstaklinga sem hittast vegna þess að þeir hafa gaman af
mótapóker. Klúbburinn hefur alla tíð barist fyrir lögleiðingu mótapókers, en meðlimir fallast á þá skilgreiningu að
peningapóker (cash game) geti hins vegar fallist undir fjárhættuspil. Í áramótaávarpi sem finna má á heimasíðu
klúbbsins segir m.a.s. ,,að munurinn á peningapóker og mótapóker sé jafn mikill og munurinn á sunnudagsrúnti og rallakstri.
Að kalla þetta bara akstur í allri venjulegri umræðu og láta sömu lög og reglur gilda er að sjálfsögðu
fáránlegt”.


