Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Átta ástæður fyrir því að þú þurfir að endurskoða líf þitt..

1.  Einn daginn munt þú kæri vinur DEYJA! Ef þú ert ekki að gera það sem þig langar að gera, er þá ekki löngu kominn tími á að endurskoða hvað þú ert að hugsa?Hvað ertu að spá ?

2. Ertu að bæla inni eitthvað óþægilegt. Ertu samkynhneigður. Varstu laminn í æsku. Lagður í einelti. Ertu skilnaðarbarn. Vissir þú að þetta hefur mjög mikil áhrif á líf þitt og ef þú myndir leita þér hjálpar gæti lífshamingja þín aukist um mörg tugi prósenta!

3.    Þú færð bara eitt tækifæri nýttu það! Ekki þora ekki! Byrjaðu að þora í dag!

4.  Langar þér að lifa lengi? Reykir þú daglega, drekkur þú á hverjum degi? Hreyfir þú þig aldrei? Er kaffibollinn þinn besti vinur þinn? Öllum langar að vaxa dafna og þroskast, allt of margir deyja á miðjum aldri, út af klaufaskap og vanvirðingu við sinn egin líkama!Athugaðu málið! Áður en þú....:(

5.      ÞOlirðu engan, fara allir í taugarnar á þér, ertu mjög öfundsjúku/r ! SKAMM! Hlýddu mér og brostu framan í aðra hverja manneskju sem þú mætir á morgun og hugsaðu fallega til hennar!, sjáðu hvernig þér verður launað fallega til baka!Það er mjög slæmt að hata alla, hataðu alla þegar þú ert dauður!

6.  Hefuru lítið samband við fjölskyldu þína? ,,Þetta” fólk er það sem er þér næst, það rennur sama blóð um æðar þínar og þess, láttu ekki amstur nútímans, stela frá þér ömmu þinni eða hressa frænda þínum, kynnstu fólkinu sem er þér næst og sjálfum þér í leiðinni!

7. Læturu slæmu minningarnar hafa vond áhrif á þig! Vissiru það að þeir sem hafa öðlast mestan og bestan árangur í lífinu, kenna oft mistökunum um árangurinn, hættu að gráta og byrjaðu að hlægja!

8.Geriru aldrei neitt fyrir neinn nema sjálfan þig? Máttur þess að gera öðrum gott er mikið betri en þig grunar, prufaðu að skrá þig í rauða krossinn, heimsækja einmanna gamalmenni eða jafnvel fóstra kettling sem á að lóga! Byrjaðu að hugsa um aðra en - sjálfan þig. 

Vissir þú að sumir labba alla ævi og leita að fjársjóði, fatta svo að hann var allan tímann í rassvasanum hjá þeim, ekki vera einn af þeim :) 




Mynd augnabliksins

20110217-_mg_8222-25.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning