Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Lanvin nýr gestahönnuður H&M

Alber Elbaz er dáður og elskaður af tískuáhugamönnum um allan heim.
Nú segja flest tískublogg frá því að Lanvin verði nýr gestahönnuður Hennes & Mauritz. Þetta franska tískuhús fetar því í fótspor m.a. Karl Lagerfeld, Stella McCartney og Sonia Rykiel. Lesa meira

Er þetta nokkuð raunverulegt?

Jim Carrey og Leonardo diCaprio í hlutverkum sínum í The Truman Show og Inception.
Það er athyglisvert hvernig kvikmyndir geta haft áhrif á okkur. Fólk tekur ákvarðanir um að breyta lífi sínu út frá einni kvikmynd, aðrir kíkja alltaf undir rúm eða inn í skáp áður en þeir fara að sofa og enn aðrir halda að þeir séu aðalpersónan í daglegum sjónvarpsþætti án þess að vita af því.

Lesa meira

Blaðaljósmyndarar á Listasafni Akureyrar

Portraitt mynd ársins 2009
Blaðaljósmyndarafélag Íslands og Listasafnið á Akureyri tóku höndum saman og opnuðu í dag viðamikla ljósmyndasýningu í Listasafni Akureyrar, og ber opnunin upp á Akureyrarvöku. Um er að ræða sýningu sem kallast Guðir og menn, og er hún í raun tvær sýningar. Annars vegar er þetta hin árlega sýning
Blaðaljósmyndarafélags Íslands  "Myndir ársins", en þetta er í fyrsta sinn sem sú sýning er sett upp norðan heiða. Hins vegar er sýning á myndröðinni "Trú" eftir norska ljósmyndarann Ken Opprann.
Sjá meira hér

Byrjaði allt í strætó

Strákarnir í Diktu
Strákarnir í hljómsveitinni Diktu héldu tvenna tónleika á Græna hattinum síðastliðna helgi auk þess að koma fram á söngkeppni framhaldsskólanna, en það má segja að þar hafi allir sungið með af mikilli innlifun þegar þeir tóku lagið Thank You enda hefur lagið verið að slá öll met hér á landi í vinsældum. Fréttamaður landpóstsins fór og hitti þessa hressu stráka á bláu könnunni. Lesa meira

Snæfell í úrslit

Snæfellingar að fagna sigri eftir leik
Snæfell er komið í úrslit Iceland Express deildar karla í körfu eftir sigur á KR í oddaleik , 83 -93.  Snæfell vann þar með rimmuna 3-2 þar sem allir sigurleikirnir unnust á útivelli hjá báðum liðum, sem verður að teljast nokkuð óvenjulegt. 

Lesa meira

Stórflóð að hefjast - Rýming á bæjum

Frá Eyjafjallajökli
Nýlega barst tilkynning um að mikið vatnsflóð sé að koma niður Gígjökul. Ákveðið hefur verið að rýma svæði við Eyjafjallajökul strax.  Að sögn almannavarna er um klukkustund þar til flóðið nær til byggða þannig eins gott að hafa hraðan á ef ekki á að fara illa. Búið er að senda út tilkynningu til íbúa á svæðinu og rýming er hafin. Lesa meira

Námsstyrkur frá Hugvit hf

Við afhendingu í dag
Fyrirtækið Hugvit hf. veitti í dag styrk til nemanda í raunvísindanámi við Háskólann á Akureyri, að upphæð 500.000 kr. Styrkinn hlaut Ketill Gauti Árnason nemi í líftækni, Ketill Gauti þykir hafa sýnt framúrskarandi námsárangur á raungreinasviði í framhaldsskóla sem og á fyrsta ári við viðskipta-og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.
Lesa meira

Hvað segir fólkið í landinu?


Fréttaritari Landpóstsins gluggaði í skrif vina sinna á facebook til að taka púlsin á viðbrögðum fólks við útkomu rannsóknarskýrslunnar og atburða undanfarinna daga. Eftirfarandi eru beinar tilvitnanir teknar úr "status" fólks og sýna þær glöggt að fólk er allt annað en ánægt.

"Löglegt en siðlaust? Ef fólk veit að gjörðir þeirra eru siðlausar, hversvegna gerir það hlutina þá? Og ef svo, getur þá sama fólk átt von á því að það haldi virðingu annara? "

 

"Do you know why there's a constant vulcanic eruption in Iceland? They're making space in Hell for those responsible for the bank collapse! They were even wise enough to stop for a few days, for the Althingi report to come out to see how much space they needed!!"

Lesa meira

Mynd augnabliksins

img_8667.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 58
Samtals: 173902

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning